14. mars 2009
Ég horfði á Idol í gær og ég fékk eiginlega ógeð á þessum þætti eftir gærkvöldið. Snýst þetta orðið um hver er líklegastur til að vinna Herra Ísland, hver er með bjartasta brosið, flottustu tennurnar og breiðustu bringuna. Ég var gapandi yfir hverjir komust áfram. Reyndar fannst mér enginn af þeim sem kepptu góður en þeir skástu komust ekki áfram.... þetta var hörmung.
23. febrúar 2009
Ég er að spá afhverju í ósköpunum þetta lag komst ekki í úrslit í Eurovision ? Hverjir voru í dómnefnd þarna eða var bara dregið um hvaða lög kæmust áfram ? Þetta er ansi þétt og grípandi lag.
15. febrúar 2009
Hversu bilaður getur maður orðið... héðan fóru þrjú atkvæði til Ingó og svo heyri ég í dótturinni tala við ömmu sína í síma og segja henni frá því að mamma sín hafi bannað henni að kjósa Harasysturnar..... hmmmm.... hvurslags eiginlega, ég þarf kannski að slaka aðeins á.
Gaman að sjá fréttir frá Vestmannaeyjum þessa dagana, það er allt svo jákvætt og yndislegt. Bæjarstjórinn átti gullmola ársins þegar hann var spurður hvað byggju margir í Vestmannaeyjum? Hann svaraði kokhraustur "Tæplega 5000 manns, 4100" Snilld ! Vonandi fáum við bara frið til að halda áfram á okkar réttu braut... fyrir höfuðborgarsinnuðum stjórnmálamönnum.
Talandi um stjórnmál.. sem ég hef ekki hundsvit á .... það styttist óðum í kosningar og ég er orðin svo hlutlaus að ég er eins og Sviss. Það breytist ekki nema eitthvað stórfenglegt komi uppá.
11. febrúar 2009
7. febrúar 2009
Ég hef sjaldan eða aldrei orðið eins gapandi hissa og þegar ég sá þessa frétt. Ég eiginlega frussaði úr hneykslun... er ennþá orðlaus yfir þessu. Já einmitt, ég myndi snúa við á punktinum í bíóhúsi ef ég sæi hundrað tsjátsjá hunda á vappi á leið í bíó. Ég ætla að vona að Spaugstofan taki þetta fyrir eða bjóði hugmyndasmiðnum vinnu hjá sér - hann er snillingur.
Hvernig líst ykkur annars á Eurovision ??? Ég er alveg mát hvað sumir eru fúlir yfir þessum lögum. Þetta eru bara ágætis lög með undantekningum þó og má þar nefna Hara kjaftæðið t.d. Mér er lífsins ómögulegt að skilja að Hara systur séu frægar fyrir söng, þær minna mig alltaf á söng íkornanna í Alvin and the Chipmunks og eru FALSKAR. Þoli þær ekki og forðast þær eins og heitan eldinn. Eins skrýtna lagið með leðurstelpunum.. ég bara fatta það ekki. Ingó er með langflottasta lagið, lag sem virkilega grípur mann og gleður mann. Vornótt eða "Gamla" lagið er ansi sjarmerandi og fallega sungið, væri gaman að senda það lag líka út. Kántrýlagið er grípandi og Jógvan syngur frábærlega fallegt lag. Hvað getur maður sagt... ég er nörd.
30. janúar 2009
29. janúar 2009
Eitt það eitraðasta í mínum beinum er að sjá hundaskít á förnum vegi. Ég get alveg tekið trompið yfir þessu. Hvað er fólk að gera með hunda sem er svo samviskulaust og dofið að leyfa þeim að skíta hingað og þangað og svo er bara farið í burtu. Hvaða yfirsubbur eru þetta ? Ég sá tvo stóra drjóla á gangstétt áðan... þeir voru á mjög áberandi stað og vafalaust á einhver eftir að labba í þetta. Svo eyðileggur þetta fólk fyrir þeim sem virkilega standa sig og hirða eftir hundana, já það er nefnilega meira áberandi að sjá hundaskít á gangstétt heldur en að sjá engan hundaskít.
22. janúar 2009
Það er búið að vera nóg að gera hjá mér í lestrinum. Er búin að spæna í mig nokkrar góðar bækur og mæli hikstalaust með þessum; Kona fer til læknis, Strákurinn í röndóttu fötunum, Berlínaraspirnar og Kuðungakrabbarnir og á náttborðinu hjá mér núna er Aska Angelu. Allt snilldarbækur.
Annars er allt í góðum gír og sama gír. Myrkrahöfðinginn er að njóta árstímans í botn, kveikir á kertum og hefur það notalegt í mjúku birtunni. Er orðin frekar spennt fyrir mínu fyrsta þorrablóti sem ég fer á um þarnæstu helgi. Við saumóstelpurnar ætlum að fara saman með mökum á Hawaii-þorrablót hjá Akóges og erum að dundast í að sauma og græja outfittið. Ég held þetta verði mikið stuð plús það að ég elska þorramat og það vel súran.
Ástandið í þjóðfélaginu: ég er skíthrædd. Mér finnst í lagi að mótmæla en þetta...... Mér finnst viðbjóðslegt að grjótum og þaðanaf stærri hlutum sé kastað í lögregluna. Það er mín skoðun að ríkisstjórnin átti að vera fyrir löngu búin að reka Davíð, forstjóra FME, viðskiptaráðherra og fjármálaráðherra þá hefðu þeir kannski fengið frið til að vinna sína vinnu. Núna sýnist mér allt stefna í upplausn og kaos og ég hef áhyggjur af því ástandi samfara öllu ruglinu fyrir. Ég get ekki ímyndað mér hvern ég á að kjósa til að stjórna landinu ef til kæmu kosningar núna.
11. desember 2008
Ég get svo svarið fyrir það. Í hvert sinn sem ég sé Steingrím Joð þá hugsa ég um Georg Bjarnfreðarson. Kannski smá útlitið en í tali eru þeir ótrúlega líkir...spurning hvort þarna sé einhver fyrirmynd. Tek það fram að mér er ekkert illa við Steingrím Joð.

height="38" width="41" id="EXim" alt="eXTReMe Tracker" />